UMF Narfi
Heimasíður leikmanna
22.07.2010 13:05:45 / Narfi Freyr

Leikur í kvöld kl: 21:00

Eigum leik við Timburmenn í kvöld kl: 2100 í boganum. Það var góð mæting í síðasta leik og vonum að það verði eins núna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.07.2010 22:26:55 / Narfi Freyr

Leikur Narfi vs. Leppaður Arfi

Í kvöld fór fram leikur Narfa og Leppaðs Arfa. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik, og strax í byrjun seinni hálfleiks náðu Arfar að koma knettinum í net Narfa manna. Stuttu seinna rendu þeir knettinum aftur í markið.
Narfa menn náðu þó að minnka muninn í eitt mark en komust ekki nær og staðan í lok leiks því
2 - 1 fyrir Leppuðum Örfum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2010 23:28:22 / Narfi Freyr

Sigur Gegn FC vinum 010

Narfa menn tóku á móti FC vinum 010 í gærkveldi og tóku þeir þá í kennslustund og var þeim rúllað upp eins og rúllupylsu, með 9 - 1 sigri.
    Markaskorarar voru þeir Gunnar Þór Jónsson með þrjú mörk, Gunnar Páll Háldfdánarson með tvö mörk, Bogi S, Kristjánsson með tvö mörk, Stefán Hrafn Stefánsson með eitt mark og svo hjálpuðu FC vinir okkur með það níunda, En bætu fyrir það með marki sem þeir skoruðu.
Þökkum við FC vinum fyrir góðan leik og einnig fyrir hjálpina við sigurinn (EKKI ILLA MEINT)

Næsti leikur er 8 júlí og verður hann kl: 20:00 stundvíslega og leika Narfa menn þá við Leppaðan Arfa.

ES.
Vil ég þá hvetja alla þá sem sjá sér fært um að mæta að MÆTA en ekki að hanga yfir sjónvarpinu og vorkenna sér.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2010 22:43:28 / Narfi Freyr

Nýr linkur

Búinn að setja inn leikjatöflu 2010 fyrir utandeildina í ár undir aðalvalmynd.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2010 22:37:34 / Narfi Freyr

SIGUR

Narfa menn tóku á móti Smáranum í kvöld kl: 20:00. leikurinn fór 4 : 0 fyrir okkar mönnum þ.e.a.s Narfa mönnum svo það sé á hreynu.

Vil minna þá menn sem eru á skýrslu sem eru nú ekki nema 22 menn að reyna að sjá sér fært um að mæta, þetta slapp til núna í kvöld og síðasta leik. Veit það eru nokkrir sem eru ekki á staðnum, en þeir sem eru á staðnum geta litið við í klukkutíma og sparkað í tuðruna með okkur. Við erum rétt svo að ná í lið á síðustu mínútum fyrir leik, og að mæta þá á réttum tíma því að við þurfum að fylla leikskýrsluna út fyrir leik og skila fyrir leik, og þeir sem koma og ættla að vera með þegar leikurinn er byrjaður verða ekki með. Þetta slapp til í kvöld, en held að við sleppum ekki svo vel í næsta leik sem verður fimmtudaginn 24. júní kl: 20:00 við FC Vini 010
Vil enn og aftur minna fólk á að koma og hvetja okkur til dáða. ha Hilmar heyrirðu það.











» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2010 14:36:55 / Narfi Freyr

LEIKUR!!!!!

Nú í kvöld fer fram leikur Narfa og Reynis frá Árskógströnd. Mun leikur hefjast stundvíslega klukkan 20:00. Og viljum við hvetja þá sem lesa þetta blogg að mæta og hvetja sína menn þ.e Narfa.

Takk og bæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2010 20:01:26 / Narfi Freyr

Goðadeildin

Komið þið sæl og blessuð

Goðadeildin (Utandeildin) fór af stað í gær og tóku Narfa menn á móti Mývetningum frá Mývatnssveit. Þetta fór vel af stað og leit vel út, svo fór að blása á móti hjá okkar mönnum og fengum við mark á okkur og í lok leiks voru þau orðin 6. En alltaf héldu Narfa menn áfram eins og þeim einum er lagið. Enda er mikill baráttuandi innan liðs Narfa. Tölur í leikslok 0 - 6
Í liði Narfa manna í gær sem spiluðu voru 10 liðsmenn þar að auku þrír nýir liðsmenn * (Nýr)

Bogi
Stefán Hrafn
Gunnar Páll
Þorvaldur Óli
Börkur
Sigurður Óli *
Ólafur Kristinn
Gísli Ólafsson
Gunnar Þór *
Þorvaldur Þorsteinsson (Markvörður) *

Næsti leikur er á Fimmtudaginn 3 júní og spilum við þá við Reyni frá Árskógströnd. Kl: 20:00
Og vil ég hvetja alla sem geta að mæta og styðja sína menn. Áfram UMF Narfi

Til að sjá næstu leiki og framvindu þeirra er mönnum/konum bennt á síður Knattspyrnudómarafélags norðurlands www.http://kdn.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2010 12:52:00 / Narfi Freyr

59. Ársþing IBA 2010

                                         

59. Ársþyng ÍBA var haldið á hótel KEA miðvikudaginn 14. apríl kl: 18:00

Fulltrúar ungmennafélags NArfa voru þau Bára Steinsdóttir og Narfi Freyr Narfason.

Þröstur Guðjónsson formaður ÍBA setti þingið og bauð þinggesti velkomna og minntist félaga íþróttahreyfingarinnar á Akureyri sem létust á liðnu starfstímabili.
Ávörp gesta:
Ólafur Jónsson, ÍRA flutti ávarp.
Þröstur Guðjónsson flutti skýrslu stjórnar ÍBA og gerði umtalefni ársskýrslu ÍBA sem er merkilegt plagg og geymir mikla sögu. Hann taldi mikilvægt að halda þessri útgáfu áfram svo lengi sem menn treystu sér til vegna heimildagildis hennar. Hann fór svo yfir starf stjórnarinnar og helstu áherslu mál á liðnu starfstímabili.
Haldór Arinbjarnarson gerði grein fyrir kjörbréfum. Kjörbréf bárust frá 17 aðildarfélögum vegna 59 þingfulltrúa.
Gunnar Kárason fór yfir reikninga stjórnar sem birtir eru í ársskýrslu.
Þröstur Guðjónsson kynnti tillögur stjórnar ÍBA að lagabreytingum.
Björgvin Ólafsson Bílaklúbbi Akureyrar lagði fram tillögu frá Bílaklúbbnum.
Gunnar kárason kynnti fárhagsáætlun ÍBA fyrir árið 2010
Engar umræður um fjárhagsáætlun.
Kynntar tillögur um fulltrúa 3ja manna laganefnd, alsherjarnefnd og fjárhagsnefnd.
Tillögur samþykktar.
Fræðsluerindi:
Ársæll Arnarson, dósent í sálfræði við HA: Hafa íþróttir forvarnargildi.

Þinghlé og veitingar.

Formaður fjárhagsnefndar, Sigríður Jóhannsdóttir, gerði grein fyrir vinnu nefndarinnar og lagði til að fjárhagsáætlun ÍBA yrði samþykkt. Engar athugasemdir gerðar og fjárhagsáætlun var samþykkt.

Formaður laganefndar, Björn Guðmundsson, gerði grein fyrir vinnu nefndarinnar.
Nefndin leggur til breytingar á tillögum. Lögin í heild borin upp og samþykkt samhljóða með áður samþykktum breytingum.

Formaður allsherjarnefndar, Ása Birgisdóttir, gerði grein fyrir vinnu nefndarinnar.

Fulltrúar nýrra félaga, Draupnis, Karatefélags Akureyrar, Svifflugfélags Akureyrar og Kraftlyftingafélags Akureyrar kallaðir upp, Þröstur bauð þá velkomna og afhenti þeim veifu ÍBA.

Kosningar
Kosningar staðfestar skv. tillögum uppstillinganefndar.
Formaður: Þröstur Guðjónsson
Stjórn: Haukur Valtýsson, Margrét Ólafsdóttir, Magnús Gauti Gautason.
Varastjórn: Hörður Sigurharðarson, Áslaug Kristjánsdóttir og Ármann Ketilsson.
Skoðunarmenn: Sveinn Torfi Pálsson, Guðmundur B. Guðmundsson.
Kosning á ÍSÍ þing vísað til formannafundar.
Önnur mál:
Ásta Birgisdóttir, ræddi fyrirmyndarfélög og afreksstyrki. Viðar Sigurjónsson, hrósaði ÍBA og þingfulltrúum fyrir gott og málefnalegt þing..
Andrea Þorvaldsdóttir, formaður Léttis, hún vildi sjá veifur félaganna á borðum.
Þingforseti lauk störfum og þakkaði fyrir sig.

Þröstur Guðjónsson þakkaði það traust sem honum var sýnt með endurkjöri. Hann þakkaði þingforseta, þingritara þeirra störf. Fríða Pétursdóttir og Gunnar Kárason voru kvödd með blómum og þökkum. Þröstur þakkaði gestum þingsins, Hermanni heiðursfélaga ÍBA og Helenu steinunni og Viðari frá ÍSÍ. Hann ræddi mikilvægi formannafunda og hvatti formenn til þess að mæta vel á þá. Að því búnu sleit Þröstur 59. ársþingi ÍBA, kl. 22.

Heimildir: http://iba.is

Stjórn ungmennafélags Narfa Hrísey sitja

Formaður: Gunnar Páll Hálfdánsson
Vara formaður: Narfi Freyr Narfason
Gjaldkeri: Pétur Steinþórsson
Ritari: Bára Steinþórssdóttir
Meðstjórnandi: Heimir Áslaugsson

Ef félagar ungmennafélags Narfa eru áhugasamir um að fá að glugga í skýrslu ÍBA, þá geta þeir leitað til stjórnar umf Narfa, umfnarfi@gmail.com eða símleiðis.

Fyrir hönd stjórnar ungmennafélags Narfa.

Narfi Freyr Narfason



» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2009 13:14:07 / gestur

leikur í kvöld

Minni á að í kvöld, þriðjudaginn 30, er leikur við Þrumuna í Boganum klukkan 20:00

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.06.2009 16:58:38 / gestur

Utandeildin 2009

Þá er utandeildin þetta árið komin í fullan gang, alls eru 12 lið í keppninni og er leikið í einum riðli. Fyrstu þrem umferðunum er lokið. Fyrsta leiknum lauk með 3-2 sigrim á Reyni, markaskorarar voru Stefán með 2 og Þorvaldur. Öðrum leiknum lauk með 1-0 tapi á móti Hata og Þriðja leiknum með 2-2 jafntefli við Timburmenn eftir æsispennand lokamínútur með mörkum frá Gísla og Kristjáni. Næsti leikur er á móti Hömrunum á fimmtudaginn klukkan 8 í Boganum.

Nr.

Lið L U J T Mörk Net Stig
1 Mývetningur 3 3 0 0 9-4 5 9
2 Leppaður arfi 3 2 0 1 10-5 5 6
3 Hamrarnir 3 2 0 1 8-6 2 6
4 Hati 3 2 0 1 7-8 -1 6
5 Team Dolles 3 2 0 1 4-10 -6 6
6 Reynir, Árskógsströnd 3 1 1 1 9-6 3 4
7 Timburmenn 3 1 1 1 7-5 2 4
8 UMF Samherjar 3 1 1 1 7-7 0 4
9 Narfi 3 1 1 1 5-5 0 4
10 Varamennirnir 3 1 0 2 5-3 2 3
11 Þruman 3 1 0 2 5-10 -5 3
12 Smárinn 3 0 0 3 4-11 -7 0


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2008 16:32:18 / gestur

úrslit

jæja þá er utandeildinni lokið í ár og enduðum við í öðru sæti eftir hörku tímabil, töpuðum fyrir Leppuðum Arfa í úrslitaleiknum síðasta fimmtudag 3-1 og skoraði Kristján markið okkar. Síðast þegar Narfi komst í úrslitaleik í fótbolta var í bikarkeppni eyjafjarðarmótsins 1987 og var niðurstaðan þá líka silfur. Þetta tímabil er búið að vera glæsilegt og greinilegt að menn ná gríðarlega vel saman, alltaf fullmannaðir í leiki og leikgleðin með eindæmum.
myndir úr leiknum



» 1 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 21:30:33 / gestur

leikur

leikurinn á morgun við Leppaðan Arfa er klukkan 20:00

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 20:06:18 / gestur

ÚRSLIT

Þá erum við komnir í úrslit utandeildarinnar eftir glæsilegen sigur á Thor. mörkin skoruðu Gunni og Björgvin. Úrslitaleikurinn verður næsta fimmtudag kl 19:00 (geri ég ráð fyrir) þar sem að við munum spila við Leppaðan arfa sem unnu Reyni í undanúrslitum. mættum þeim í fyrstu umferð utandeildarinnar þar sem að við töpuðum 3-2 í hörkuleik.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 10:17:02 / Heidar

Úrslitakeppnin!

Jæja,

Við unnum Dolles um daginn 2-1 með mörkum frá Björgvin og Gunna og tryggðum okkur þar með annað sætið í riðlinum!

Thor er búið að sigra hinn riðilinn þannig að við mætum þeim í undanúrslitum Fimmtudaginn 07 ágúst kl.19.00 að öllu óbreittu!

Mætum með okkar sterkasta lið og förum alla leið í úrslitaleikinn! :)

Áfram Narfi!

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 12:37:53 / gestur

vs Dolles

Ætla bara að minna á leikinn við Dolles í kvöld klukkan 19:00,



» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 539 dögum
Narfi vs. Vinir vors og sússa
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 38761
Mörk
Gunnar Páll : 6
Bogi : 6
Gunnar Þór : 3
Stefán Hrafn : 1
Spjöld (gul/rauð)
Kristján Loftur: gult
Unnar Númi: gult